Saga Galsa

Ljósm. Jón Axel Birgisson

Galsi er fæddur árið 1990 og var upphaflega í eigu Sveins Guðmundssonar á Sauðárkróki.

Baldvin Ari Guðlaugsson og Andreas Trappe keyptu hestinn á fjórða ári og sáu strax hvað í honum bjó. Síðar keyptu Hrossaræktarsamb. Suðurl., og Hrossaræktarsamband Skagfirðinga hlut í hestinum svo og fleiri aðilar. Galsi var vægast sagt vel ættaður undan gæðingnum Ófeigi frá Flugumýri og Hervarsdótturinni Gnótt frá Sauðárkróki. Galsi var sýndur 4 vetra árið 1994. Þar hlaut hann 8,25 í aðaleinkunn, 7,88 í sköpulag og 8,63 fyrir hæfileika sem er glæsilegt af svo ungum hesti. Galsi hlaut fimm 9,0 í þessum dómi eða fyrir brokk, skeið, stökk, vilja og fegurð í reið.

Sinn hæsta dóm hlaut Galsi árið 1996, sex vetra gamall. Hann hlaut 8,44 í aðaleinkunn, 7,87 fyrir sköpulag og hvorki meira né minna 9,01 fyrir hæfileika.

Galsi sló svo í gegn á landsmóti á Melgerðismelum í Eyjafirði árið 1998. Þar sýndi hann hvað hann gat í flokki alhliða hesta og sigraði með glæsibrag. Af einhverjum ástæðum kom bakslag í vinsældir Galsa á kaffistofum hestamanna þar sem sumir sögðu hann lélegan á tölti og hefði ekki endilega átt sigurinn á LM skilið. Mikil neikvæðni var í sumum mönnum um tíma, þá sérstaklega þegar stóðhesturinn Glampi frá Efri-Rauðalæk var sýndur. Glampi stigaðist mjög hátt fyrir brokk og skeið, enda afburðahestur á þeim gangi. Töltið var með því versta sem gerist hjá graðhesti, hlaut t.d. 6,5 sex vetra fyrir tölt en hvorki meira né minna en 10,0 fyrir skeið. Þótti mönnum þar sannað að tölthæfileikar Galsa væru í slakara lagi.

Baldvin Ari barðist ötullega fyrir heiðri Galsa og sýndi hvern gæðinginn á fætur öðrum frá Efri-Rauðlæk, heimabæ foreldra sinna. T.d. eins og Ísól, Sól og Hraunar frá Efri-Rauðalæk sem eru með há fyrstu verðlaun. Þá birti yfir framtíð Galsa og fólk fór að vera jákvætt til hans. Í dag eru til nokkuð mörg fyrstu verðlauna afkvæmi undan Galsa og árið 2004 hlaut hann heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, varð í fjórða sæti.

Hinn mikli höfðingi Galsi frá Sauðárkróki hefur loksins fengið heimasíðu.  Hann hefur í gegnum tíðina þurft að mæta mótlæti.
Baldvin Ari barðist fyrir honum og nú er komið að því að saga hans verður rakin. Afkvæmi verða birt og umræða sett af stað um þann við gleymdum.
Nokkrir hluthafar hafa sett af stað síðu sem vonandi verður til þess að þessi gæðingur fari ekki í gröfina áður en hans verði minnst.  Hann er 18 vetra en samt í fullu fjöri, enda gott fólk búið að sinna honum.

Sendið póst á galsi@galsi.is ef einhverjar spurningar vakna um þessa síðu.
Copyright © 2008 Galsi frá Sauðárkróki
Síðast uppfært: 13/07/10
Unnsteinn Tómasson í síma :6995470
Dieter Pollitz í síma 8571845

Vefstjórn og hönnun Ásta María Jensen

Almennar upplýsingar  astamj@isl.is

sími: 849-4869

Read all about it,  in english